Skilmálar um afhendingu vöru
Allar pantanir eru afgreiddar innan 3ja virkra daga frá pöntun. Öllum vörum er dreift með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Við berum samkvæmt því enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Sendingakostnaður reiknast þegar gengið er frá pöntun. Athugið að við getum ekki borið ábyrgð á seinkunum sem kunna að verða hjá flutningsaðila.